Þegar ég hitti KAZ
Ég var svo frægur að tala nokkur orð við Bill Kazmaier og Ode Wilson á sínum tíma, þegar þeir héldu fyrirlestur í gamla World Class húsinu fyrir margt löngu. Kaz er alveg svakaleg týpa og hrikalegasti maður sem ég hafði augum litið. Ég ákvað að spyrja þá um hvernig ég gæti stækkað bysepinn og þeir voru hinir almennilegustu og Kaz gaf mér svo plakat með sjáfum sér. Síðan var ég svo frægur að ná í eiginhandaráritun hjá Kaz og Jón Páli á móti í Reiðhöllinni, en ég hafði mig ekki í að biðja þá um áritunina sjálfur, heldur fékk ég Narfa bróður í verkið. Ég held alltaf mikið upp á þennan páppír. Annars er þetta frábært framtak hjá Hjalta Úrsusi (Legend) að sýna allar gömlu keppnirnar, eins og Sterkasti maður Evrópu 1983, Sterkasti maður heims 1982-4 osf, en þessi mót hafa ekki verið sýnd hérna fyrr en nú. Svo er bara að hlakka til haustsins og sjá myndina um Jón Pál, en vonandi á goðsögnin Hjalti eftir að gera alveg ógleymanlega heimildamynd, en síðustu daga hef ég verið að horfa á flottar heimildamyndir um m.a Tiger Wood, Maradona, Beckham. En vonandi á myndin um Jón Pál eftir að slá þeim öllum við. Hann var mitt goð eins og svo margra annara.
3 Comments:
kondu og fáðu áritun hjá mér
Hjalti úrsus legend
Ætlarðu að segja mér Master að þú hafir aldrei fengið áritun hjá Úrsus legend??
Hvurslags er þetta..og keyptirðu aldrei Legend bol af honum?..þeir eru þúsunda virði í dag!!
------------
Kveðja Magister..sem skorti hugarflug í den til að versla Legend bol..
jú, vona það, en ég hefði samt viljað eiga áritun allra frá þessu móti. Narfi fór og talaði við Kaz og John Paul, en hefur ekki náð í hina keppendurnar m.a Legend. En hvaða mót var þetta eiginlega? Var þetta Hreysti 1989 eða?
Post a Comment
<< Home