Tuesday, October 19, 2004

Þreyttur fótbolti

Ég gafst algerlega upp á að horfa á þriðjudagsleiki Meistaradeildarinnar. Liverpool og Man. Utd náði ekki að skora þrátt fyrir góðan vilja, en Michael Owen náði hins vegar að opna markareikning sinn fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni, sem er gott fyrir hans ego og enska lansdsliðið. Verð að viðurkenna að ég er orðin spenntur fyri stórleiknum í dag, Barca - AC Milan. Vona að að við verðum ekki fyrir vonbrigðum með þann leik, því það eru fleirri en ég sem gera sér væntingar. Þessi tvö lið ásamt Arsenal, eru talin þau bestu í Evrópu nú um stundir. Vonandi ná mínir menn í Barca að koma með eitt stig eða fleirri frá Mílanóborg.



0 Comments:

Post a Comment

<< Home