Saturday, June 10, 2006

HM

Nú er HM í knattspyrnu byrjað og maður rauk auðvitað í vekefnið að kaupa nýtt sjónvarp. Keypti þetta risastóra Plasmatæki, sem verslanir hafa nú byrjað að hreinsa út, til að ríma fyrir næstu kynslóð af tækjum. Þetta eru hins vegar ágætis tæki, þótt ekki sé sent út í breiðtjaldsformi hér á landi (sýn extra II gerir það nú reyndar..gott framtak). Horfði þó á fyrsta leikinn í Borgarleikhúsinu, þar sem Gothestofnunin bauð öllum á Þjóðverjaleikinn og allt flæddi í bjór. Ég var því ekki með "fule fem" þegar ég keypti mér sjónvarpið eftir leikinn. Að sjálfsögðu passaði þetta flykki ekki inní innréttinguna og því horfir þetta til vandræða. Verð að taka nokkrar aukavaktir til að bæta upp þetta eyðslubrjálæði. 155 þúsund kostaði tækið, en að sjálfsögðu ekki á borðið. Samt hefur maður verið að horfa á leikina á þessum börum. Hitti til dæmis skólafélaga mína þá Kristján Hlöðverz og Aðalstein Thorarensen yfir leik Argentínu og Fílabeinsstrandarinnar. Við horfðum á leikinn á einhverri biljardstofu á Hverfisgötu. Hef líka kíkt á aðstæður á Hressó og Pravda. Einnig er fínt HM horn á litlu ölstofunni við Kirkjutorg osf. Gaman að kanna þessa fótboltabari, en vil að sjálfsögður forðast helvítis reykinn. Bíð spenntur eftir leik Angóla og Íran. Ajatolarnir gegn mannætunum. Mín spá fyrir keppnina er sú að Ítalía vinni. England verði í öðru og Argentína í þriðja. Vona hins vegar að Argentína hafi það, eins held ég dálítið með Spánverjum og Englendingum. Síðan koma Ítalir. Sagan sínir hins vegar að suður ameríkuliðin hafa aldrei gengið vel í Evrópu (Fyrir utan Brasilíu í Svíðþjóð árið 1970). Það verður spennandi að sjá hvað gerist. Held að Brassarnir og Argentínumenn séu sterkastir á pappírunum, en maður veit aldrei. Það er líka spennadi að fylgjast með því hvort Eiður léttfeiti verði keyptur til Barcelona. Þá eignast þeir örugglega marga nýja aðdáendur á Íslandi. Þá er líka hætta á því að þetta verði einum of tengt Eiði. Ætli hann eigi ekki eftir að gugna á þessu og endi hjá United. Að sjálfsögðu sem varaskeifa líka, en engu að síður tilbreyting fyrir hann.
Spá:
1. Ítalía
2. England
3. Argentína
Spá II:
1. Argentína
2. Brasilía
3. Spánn

7 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þú reiknar ekkert með þýskurunum Master?
Mín spá er þessi:
1.Þýskaland
2.Brasilía
3.Spánn
4.Ítalía
-----------------
Varaspá:
1.Brasilía
2.Þýskaland
3.Ítalía
4.Spánn
------------
Kveðja
Magister

12:03 PM  
Blogger Gunz said...

Þeir eru svo leiðinglegir..!, en auðvitað set ég þá númer fjögur, í Spá I og varaspá. Hins vegar hefur maður líka oft verið heitur fyrir Hollandi og Portugal. Þessu lið gætu loksins sprungið út. Merkilegt með Van Basten að skilja Sedorf, Davis og "Mackay" eftir heima, en það gæti verið gott fyrir móralinn í liðinu að skilja þessar prímadonnur heima. En hverjir verða "spútniklið" keppninar? Mín spá:
Spútniklið...
1.Portugal
2.Ukraina
3.Filabeinsströndin
4.Usa
................
þs að eithvað "lítið" lið komist mjög lanngt til daæmis í undanúrslit keppninar. Spurning hvort Portugal teljist litlir osf. Annars á maður auðvitað eftir að sjá flest liðin.

12:55 PM  
Anonymous Anonymous said...

sPÁ MÍN UM SPÚTNIKLIÐ ER ÞESSI:
1.Ekvador
2.Mexico
3.Tékkland
3.Fílabeinsströndin
------------------
Portugal og Holland eru það mikil veldi að þau kallast ekki spútniklið ef þau ná langt...
Ég held með Englendingum og Hollendingum en bæði þessi lið ollu mér og fleirum nokkrum vonbrigðum í ftrsta leik þótt þau hefðu unnið..Argentína kemst líka örugglega langt..allavega í 8 liða úrslit..
Kveðja...Sir Magister

6:11 PM  
Blogger Gunz said...

jú, Portugal er td númer sjö á FIFA listanum þanig að þetta er rétt, sama á við um Holland osf. Tökum Spán sem dæmi, þeir hafa aldrei unnið stórmót. Það hafa þó Portugalir og Holland gert...

2:00 PM  
Blogger Gunz said...

This comment has been removed by a blog administrator.

2:02 PM  
Blogger Gunz said...

Og Mexico & Tékkland osf. eru t.d mjög ofarlega á þessum FIFA lista, þannig að þeir teljast til hinna sterkari. Einhver Afríkuþjóð á þó eftir að slá í gegn. Veðja þó ennþá á Fílabeinin.........

2:06 PM  
Anonymous Anonymous said...

FIFA listinn er bara brandari með.t.d. USA í 5 sæti!!..hinsvegar nokkuð rétt að við íslendingar erum ekkert betri en þessar vanþróuðu þjóðir í kringum 100 sætið!
Mér fannst þetta mannætulið frá Ghana ekkert sérstakt í kvöld á móti spaghetti mjónunum..þeir voru stórir og sterkir en skottæknin í lágmarki. Þeir hljóta allavega að detta út..
Kveðja
Sir Cat

3:38 PM  

Post a Comment

<< Home