Wednesday, August 30, 2006

Massaður

Maður verður víst ekki massaður á því að fara í fjallgöngu, berjamó, eða tína kartöflur. Tína kartöflur? Já, ég skrapp upp í Skammadal til að ná mér í kartöflur með Faaborgmeistaranum. Kom síðan heim með lopna putta. Þvílíkur kuldi að skella á, enda haustið á næsta leiti. Túristarnir farnir og krakkarnir eru byrjaðir í skóla. Sumarið er því búið og ég ætla að enda það á morgun með því að tína ber, þs skella mér með fjölskylduni í berjamó áður en blessuð berin frjósa í hel (er ég að verða alger kerling?). Þar með er það endanlega ljóst að þetta ár verður ekkert bætingaár. Ég ætla samt að vera með á Fógetamótinu í bekkpressu í september. Þá tek ég bara heiðuslyftu, sem ég hliðargrein við sjálft mótið. Þeir bestu keppa í bekkpressumótinu sjálfu, en hinir gömu lyfta heiðurslyftu. Maður hefur bara ekki tíma í þetta allt saman. Ég ætla að orða þetta öðruvísi. Þar að segja lífið fyrir og eftir Tiger. Fyrir Tiger átti maður nægan frítíma þrátt fyrir 200% vinnu, en eftir Tiger snýst all um litla karlinn. Hann er líka alveg frábær. Litli Tiger er orðinn mjög massaður og öflugur og minnir mig dálítið á Hulk. Hann gjörsamlega brjálast ef hann fær ekki mjólkina sína.

9 Comments:

Anonymous Anonymous said...

..Massaður.. - kerling.. - mikil vinna.. - bætingarár.. - heiðurslyfta.. - Tiger massi.. = Er þetta ekki bara í góðu lagi hjá yður? Ég held nú það = nýorðinn faðir með hlass af ábyrgð og framtíðarvonum. Upp með bjartýnina!Gangi þér vel. :-) Kv, Alma

1:01 PM  
Anonymous Anonymous said...

http://sorlilith.blogspot.com/

7:31 PM  
Anonymous Anonymous said...

http://anfangen-gabriel.blogspot.com/

7:48 PM  
Anonymous Anonymous said...

http://seenaturepictures.blogspot.com/

7:51 PM  
Anonymous Anonymous said...

http://gritos-de-mi-alma.blogspot.com/

7:56 PM  
Anonymous Anonymous said...

http://3d-cg.blogspot.com/

8:27 PM  
Anonymous Anonymous said...

http://audrisbaby.blogspot.com/

8:30 PM  
Anonymous Anonymous said...

http://goddamniloveamerica.blogspot.com/

8:43 PM  
Anonymous vicky razai online shopping said...

Maður verður víst ekki massaður á því að fara í fjallgöngu, berjamó, eða tína kartöflur. Tína kartöflur? Já, ég skrapp upp í Skammadal til að ná mér í kartöflur með Faaborgmeistaranum.
cloth stitching factory ,
stitching clothes factory ,

2:58 AM  

Post a Comment

<< Home