"Sveitasæla"
Þá er maður víst búinn að koma sér fyrir hérna á "skrifstofunni" heima. Internetið er klárt og skrifborðið. Munar öllu að geta setið við tölvuna og verið eins og heima hjá sér. Það er nefnilega mín skoðun að ef maður ætlar í frí, þá verður maður að hafa það svipað eða betra, en heima hjá sér. Annars er ég svo sem ekkert í fríi. Ég fæ borgað fyrir að vera með stráknum, en það er víst kallað að vera í fæðingarorlofi. Mjög skemmtilegt starf og það heldur manni gangandi, því maður verður líka að hafa eitthvað fyrir stafni annað en að svitna í hitanum. Hef líka skroppið í "ræktina" og reyni að mæta þrivar í viku. Hef ekki látið bjóða mér áður að æfa í þessu "gymmi" en hef þá frekar farið í sund, sem er auðvitað á sama stað. En núna ákvað ég að prófa. Það er samt ótrúlegt sem hægt er að gera við svona "krypplinga" þyngdir. Þar sem ég get ekki sett meira en 80. kg á stöngina verður maður að hugsa allt upp á nýtt. Núna tekur maður fleirri og fjölbreyttari æfingar, sem maður hefur ekki snert á í mörg ár og í mörgum þessum æfingum eru 80 kg mikil þyngd. Handlóðin eru ekki heldur þung, en samt lætur maður sig hafa þetta. Man alltaf eftir einum sem æfði í Orkulind fyrir mörgum árum. Hann tók alltaf æfingarnar á sérstakan hátt, æfði alltaf létt, en hægt. Hann var kallaður "Rakarinn", en þótt hann æfði bara með léttum þyngdum var hann (og er sennilega ennþá) helmingi breiðari en ég. Svo verður maður hugsað til Charles Atlas, sem æfði bara með eigin líkama, kallað Atlas kerfið. Sennilega mesta blöff sem til var, en...
3 Comments:
Já, þú ættir að geta pumpað eitthvað þessar þyngdir á bekknum..
Atlas eða Jowett kerfið voru ekkert blöff heldur alhliða þjálfunarkerfi sem gáfu geysilegt jafnvægi yfir eigin skjóðu og reyndust mér sem frábær grunnur þegar ég byrjaði að lyfta og var miklu sterkari en ég leit fyrir vera. Að æfa með pödduþyngdir getur líka nýst sem grunnur fyrir alvöruþjálfun þótt fæstir af þeim sem æfa þannig lengi verði eitthvað raunverulegt..
Kveðja Magister
Já, loksins er komin mynd af lesbíugymminu.... frekar fátæklegt með lóð þarna en þá er bara um að gera að pumpa sem oftast :) Farðu nú að mæta 4x í viku í staðinn fyrir 3x
með kraftakveðju
Tryllirinn
já, ég vil nefnilega trúa því innst inni að ég hafi gott af því að fara í smá "grunnbúðir" í nokkrar vikur. Sé bara til, en var að hugsa um að tvískipta prógramminu, en finnst ekki taka því ennþá..
Post a Comment
<< Home