Friday, September 22, 2006

Ég er

Ég er hættur að vera FRAM_ARI. Hreinar línur. Allavegana ætla ég að íhuga það rækilega hvort hverfislið mitt verði ekki sett í salt um óákveðinn tíma. Núna er ég eingöngu að gagnrýna stjórn Fram í bæði fótbolta og handbolta. Við munum hvernig stjórn handboltadeildar kom fram við Heimi Ríkharðsson á sínum tíma. Sannur Framari var rekinn vegna þess að það átti að ráða einhvern betri. Reyndar varð Fram síðar Íslandsmeistari með Guðmund Guðmundsson í fararbroddi, en það breytir því ekki að menn eiga að koma vel "FRAM" við eðal Framara . Síðan kom stjórnin skelfilega fram við leikmenn sína og nefni ég bara Sverrismálið sem dæmi, þegar það átti að blóðmjólka miljónir fyrir hálffertugan handboltamann, sem þráði að spila í Bundeslíkunni eftir að hafa landað Íslandsmeistaratitli fyrir Framara. Núna segir stjórn knattspyrnudeildar Fram upp Ásgeiri Elíasyni sem kom Fram upp í Úrvaldsdeildina aftur með heil níu stig fyrir ofan næsta lið. Ég er klár á því að Olla vini mínum og eðal-Framara er ekki skemmt. Gel trúað því að hann sé núna alveg brjálaður eins og svo margir gamlir góðir Framarar. Ásgeir Elíason er í mínum huga holdgerfingur Framarans. Í honum slær Framhjarta og hann kom liðinu til hjálpar eftir að liði féll um deild á síðasta ári. Ásgeir hefur marg oft komið Fram til hjálpar og gert þá að Íslandsmeisturum. Ég get alveg skilið að menn taki pokann sinn, ef árangur næst ekki, en það á ekki að segja sigursælum þjáfar upp, til þess eins að koma einhverju frægu nafni í starfið. Af hverju segir ekki þessi formaður bara sannleikann, að þeir vilji fá Gauja Þórðar til að þjálfa liðið, en sleppa því að skíta Ásgeir út í Fréttablaðinu í dag. Þetta er eiginlega barfa viðbjóðslegt. Maður fylgist með á næstu dögum og fer svo bara að halda með Þrótti á næstu árum. Ég hef alltaf haft taugar til þeirra af sögulegum ástæðum. Meðan stjórn Fram situr áfram, mun ég ekki gangast við þessu félagi. Fellum stjórnina, eða förum eitthvað annað. Áfram Þróttur.

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þú gerir alltof mikið úr þessu Master. Þetta er daglegt brauð í boltanum. Ásgeir segir sjálfur að hann sé alveg sáttur við að hætta þótt þetta hafi komið honum á óvart. Þetta var eftir ákvæði í samningi svo hvað eru menn að æsa sig..yfir íþrótt sem allt er í spillingu hvar sem er.

Kveðja. Magister

11:18 AM  
Blogger Fjölnir said...

Ég rétt missti af þér á föstudagskvöldið. Ég var á vaktinni á undan þér á 33A...

8:10 AM  
Anonymous Anonymous said...

Það borgar sig ekki að halda með fram og er Tölvutryllir mjög stoltur af þér Master.

Þú ert velkominn yfir í Val :)

2:07 PM  
Anonymous Anonymous said...

Master :

Þú gleymir nú að minnast á skandallinn í kringum handboltadeild fram þar sem notandi að nafni RIEG er að skíta út á spjallborðum annarra liða. Síðar kom í ljós að þetta er varaformaður fram í handbolta og játaði hann allt.
Svo var formaður handboltadeildar fram sem varpaði stuðningsmanni fram út úr húsi með ofbeldi í leik um meistara meistaranna .... og svo heldur lengi áfram, vilt þú vera partur af svona liði ???

2:24 PM  
Blogger Gunz said...

Ég ætlaði að heilsa upp á þig Fjölnir, en þú varst farinn þegar ég fór að leita af þér. Ég byrjaði nefnilega á yfirsetu....Sé þig þá bara á bekkpressumótinu. Jú, ég hafði lesið þetta um Rieg (Geir) í Fréttablaðinu og heyrt um málið í þættinum "mín skoðun" á Xfm. Fannst það mál auðvitað slæmt, en samt uppblásið. Samt gott ef menn komast ekki upp með að skrifa undir dulnefnum. Síðan vildi handboltadeildin gera lítið úr þessu, skiljanlega. Hins vegar fannst mér gott hjá Heimi FH-ing að hafna þjálfarastarfi hjá Fram í fótbolta. Get ekki ímyndað mér að neinn þjálfari með sjálfsvirðingu vilji vinna með stjórn Fram.

3:09 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég er sammála því að enginn þjálfari með vott af sjálfsvirðingu mun ráða sig til starfa hjá fram. Ásgeir stýrir þeim til sigurs í deildinni með 9 stigum og hvað er þakklætið, thanks for nothing... við erum búnir að nota þig í skítastarfið bless bless.....

þetta eru skilaboðin sem stjórnin sendir og ekki góð skilaboð að mínu mati. Þriðja skipti sem ásgeir tekur við fram liðinu og hefur alltaf staðið sig vel og stýrt þeim til óteljandi íslandsmeistaratitla og þetta eru þakkirnar....

3:11 AM  

Post a Comment

<< Home