Saturday, September 24, 2005

Drullenberger

Hvaða vandræði er hann Kjartan frændi búinn að koma sér í? Jú hann var í heimsókn hjá góðvini sínum þegar Baugur bar á góma. Við Sjálfstæðismenn hristum nú þetta af okkur og leggjum Baug að velli í Hæsarétti. Látum ekki deigan síga. Þeir fóru illa með hann Davíð okkar og eiga að fá að gjalda fyrir það. þetta er nú orðið óþolandi allt í kringum Baug. Baugur fjarstýrir forsetanum, Ingibjörgu Sólrúnu og fullt af kommúnistum. Meira að segja Ingi Hrafn er genginn í Baugsliðið. Nú þarf Davíð að taka hann á teppið og veita honum góða ráðningu.
Einar Stefánsson og Kjartan Gunnarsson

1 Comments:

Blogger Gunz said...

Maðurinn vinstra megin er ekki foringinn, en töffarinn til hægri er valdamesti huldumaður Íslands, Kjarri frændi

1:59 AM  

Post a Comment

<< Home