Wednesday, January 17, 2007

Bardagamaður

Ég hef verið að skoða nokkra bardaga bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Var að horfa á þætti um meistara Múhamed Ali í vikunni. Þar fer einn mesti íþróttamaður sögunnar og ein flottasta fíkúra samtímans. En Ali var auðvitað barn síns tíma og rasisti með öfugum formerkjum. Hann ánetjast ungur íslamstrú og öfgafullum svörtum mönnum sem náðu á honum stjórn. En hann var líka að berjast við fordómafullt samfélag og því skiljanlegt að hann neitaði m.a að gegna herþjónustu í Vietnam, þar sem hvíti maðurinn sendi svarta manninn til þess að slátra gula manninum og allt til þess að kapitalistar heimsins gætu barist við ógn kommúnismans. En samt held ég að Ali hafi róast með árunum og er nú virtur og dáður af flestum bæði hvítum og svörtum.

Það hefur líka verið gaman og aumkunnarvert í senn að fylgjast með "slagsmálunum" í "Frjálslynda" Nazistaflokknum. Þarna er samankomið mikið af hæfileikafólki, en vandamálið er að þetta fólk hefur ekki alist upp í venjulegum stjórnmálaflokki og hefur aldrei þurft að lúta flokksaga. Þessi hanaslagur hefði t.d aldrei getað átt sér stað í Sjálfstæðisflokknum eða Framsókn. Ef menn reyna að slá sig til riddara í þessum flokkum þá eru þeir bara látnir fara. Hann Davíð minn var lang bestur í því að halda aga í Íhaldsflokknum mínum. Þegar hann byrjaði sem formaður í upphafi tíunda áratugarins var flokkurinn fullur af smákóngum, sb Sverri Hermannsson en nokkrum árum síðar var flokkurinn laus við þá alla. Annað sem ég var hrifnastur hjá Davíð var að kæfa alla leiðindaumræðu í fæðingu. ESB og Evran var ekki á dagskrá. Eftir að við mistum Davíð í Seðlabankann hafa smákóngar í öllum flokkum vaðið uppi mðe sjálfstæðar skoðanir. Það á ekki að lýðast. Það á ekki að vera almenningur sem stjórnar umræðunni heldur stjórnmálamenn. Er það ekki annars?

Það hefur líka verið bárátta að standa í skrifinsku eins og greiðslumati. Það er auðvitað arfavitlaust að vera að fara í svoleiðis vitleysu, þegar maður hefur verið í:

a. Þriggja mánaða heimsreisu.
b. Gift sig og tekið langt sumarfrí+fæðingarorlof.
c. Þurft að stunda tvö skóla á árinu.
d. Frúin verið meir og minna tekjulaus vegna meðgöngu, lasleika og fæðingarorlofs.
e. Auk þess sem var tekinn fulur skattur af orlofstekjum.
f. Kaup á tveggja hæða sumarhúsi á vísa-rað.
g. Vera skráður með tvo bíla á skattaskýrslu
osf osf

Þetta skiptir engu máli. Þegar maður tekur sig til, þá græjar maður alla hluti. Það er nefnilega mín reynsla að ef manni langar virkilega í eitthvað þá getur maður það. Vilji er allt sem þarf. Þessi fleygu orð eru komin úr munni stórskáldsins og náfrænda míns Einars Benediktssonar. Gunnar Thoroddsen notaði þessi orð líka með eftirminnilegum hætti í áramótaávarpi á síðustu öld og þessi orð eiga að vera einkennisorð okkar allra.

Vilji er allt sem þarf.

11 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Er Einar Ben náfrændi þinn ?

3:39 AM  
Blogger Gunz said...

jsmm, Einzi frændi og föðuramma mín, þs hann var ömmubróðir hennar... og komnir af hinum frægu Reynistaðarbræðrum. Ég má semsagt ekki klæðast grænu, skíra börnin mín ákveðnu nafni osf..

5:11 AM  
Anonymous Anonymous said...

Jæja Master ...vitræni parturinn í þér kemur frá Einari Ben.. það er auðvitað óvæntur klassi sem ber að virða

Kveðja..Magister

5:30 AM  
Blogger Gunz said...

Og Stephan G. var líka af ætt föðurömmu minnar auk fjölda annara andans manna/ og kvenna. Annars er ég bara kominn af venjulegu alþýðufólki, fætæku fólki, leiguliðum´, þs forfeður móðurafa míns, móður ömmu og föðurafa osf. En þessi ættfæði er samt þræl skemmtileg

6:15 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég skil ekki hvaða máli skiptir hverjir eru skyldir manni.

8:02 AM  
Blogger Gunz said...

skiptir stundum máli$$

9:25 AM  
Blogger Gunz said...

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti,sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka
Einar Benediktsson: Einræður Starkaðar

9:29 AM  
Anonymous Anonymous said...

Jæja, bara háfleygur :-) A.

11:36 AM  
Anonymous Anonymous said...

samt er nú enginn skálda-andi í þér sjálfum Master, helst þessi fjölskyldu-andi en svo auðvitað þessi skemmtilega þrjóska sem fer stundum út í öfgar eins og að þola ekki góð uppnefni og fara í fýlu vegna þess!

Kveðja. Sir Cat

12:22 PM  
Blogger Gunz said...

Nei, það er ekki hægt að fara í fýlu út í Thailandi:

Enginn grætur Íslending
einan sér og dáinn,
þegar allt er komið í kring
kyssir torfa náinn.

Mér er þetta mátulegt,
mátti vel til haga,
hefði ég betur hana þekkt
sem harma ég alla daga.

Lifðu sæl við glaum og glys,
gangi þér allt í haginn;
í öngum mínum erlendis
yrki ég skemmsta daginn.


Sólin heim úr suðri snýr,
sumri lofar hlýju:
ó, að ég væri orðinn nýr
og ynni þér að nýju.

2:57 PM  
Anonymous vicky razai factory said...

Þetta skiptir engu máli. Þegar maður tekur sig til, þá græjar maður alla hluti. Það er nefnilega mín reynsla að ef manni langar virkilega í eitthvað þá getur maður það.
kitex bedsheets online ,
egyptian cotton bed linen ,

2:54 AM  

Post a Comment

<< Home