Wednesday, April 11, 2007

Comeback hjá Magister-Cat

Heyrst hefur að Kári Elíson hafi hafið æfingar aftur. Reiknað er með að þessi margfaldi meistari verði fljótur að ná sínu gamla formi, en hann hvíldi æfingar í rúmlega ár, vegna erfiðra flutninga í Vesturgötuvilluna, sem hann keypti með heitkonu sinni á síðasta ári. Núna hefur hann hreiðrað um sig í nýju höllinni ásamt frú Meiriháttar og því gat hann hafið æfingar í síðasta mánuði. Sagt er að karlinn bæti sig um tugi kílóa í hverri viku, en bloggarinn náði myndum af honum "nýlega" þar sem hann félst á að pósa fyrir myndavélina.














3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Flutningar og sambúð tekur sinn toll, enginn vafi á því.. En ritstjórinn lítur bara vel út þarna og aldeilis frábært að hann sé mættur til æfinga á ný :-) A.

1:17 AM  
Blogger Gunz said...

Ég var að skanna inn nokrar gamlar myndir og rakst m.a á þessar sem hvergi hafa birst áður. Ég lofa fleirri óvæntum myndum á næstunni...

3:35 AM  
Anonymous Anonymous said...

Já,maður er svoldið kviðsaðri núna..ætli þessar myndir séu ekki teknar 1996-97 held það í kringum það þegar ég var að reyna við 200 á bekk í gamla geðveikisgymi í Brautarholti..

10:44 AM  

Post a Comment

<< Home