Friday, March 09, 2007

Botninum náð III

Hvernig í ósköpunum fóru Barcelóna að tapa fyrir miðlungsliði Liverpool í vikunni. Ég er búinn að vera gjörsamlega í rusli. Í fyrsta lagi spilaði Eto eins og maður sem hefði ekki komið við bolta í mörg ár. Ég hefði haldið bolta betur en sá draugur. Aðrir í liðinu voru vara eins og skugginn af sjálfum sér a.b Ronaldinho. Svo er eithvað mikið að gerast í með liðsandann í liðinu. Eiður Smári hefur bent réttilega á hvað er í ólagi hjá þessu liði, enda eru leikmenn ekki að spila fyrir hvern annan. Vonandi fær léttfeiti (Eiður) tækifæri til að spila gegn Real Madrid (El Clasico) um helgina. Maður hefur á tilfinningunni að Eiður sé ekki að falla nógu vel inní hópinn. Þetta eru allt latínó-gæjar ættaðir frá Suður-ameríku, Spáni og Portugal, en Eiður sker sig úr í hópnum. Spái að hann fari yfir til West Ham þegar þeir komu aftur upp í úrvalsdeild á næsta ári! Barca er svo sannarlega búin að að ná botninum í vetur. Núna liggur vegurinn bara uppávið. Við tökum spænsku deildina og konungsbikarinn í staðin. Áfram Barca.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

ÞAÐ var ágætt að þetta vælulið ykkar Capellas tapaði verðskuldað í einvíginu við Púlara. Spurning hvort léttfeiti lendi ekki frekar í bekkjarfrystingu eftir blaðursbull í fjölmiðlum en hann hefur talið sig hafa efni á þessu eftir að hafa skorað sitt fyrsta mark í nærri hálft ár! (ja,allvega 3-4 mánuði)
Það væri sérlega gaman ef Sevilla yrði svo Spánarmeistari og að þú Master yrði þá að skrifa enn eina framhaldsgrein um Botninum náð...

Kveðja Sir Magister Cat

11:02 AM  
Anonymous Anonymous said...

sé að þú ert skráður á WPC mótið um helgina Master...þú veist að þeir sem eru ekki formlegir félagar þar þurfa borga 5 þúsund kall þarna...

rEYNI AÐ KOMA OG LÍTA Á ÞIG EF ÉG FÆ FAR

Kveðja Magister

10:26 AM  
Blogger Gunz said...

3000 kr skilst mér. 1500 kr fyrir félagsmenn. Gaman ef þú gætir komið!

10:36 AM  

Post a Comment

<< Home