Sunday, April 08, 2007

Skroppið norður

Ég skrapp norður til Akureyrar í gær og tók létta lyftingaæfingu. Já, eftir næturvaktina fór ég bara heim og setti strákinn í pössun hjá vinkonu. Fór síðan bara út á flugvöll í bjartsýniskasti og tók hádegisvélina. Flaug svo heim með síðustu vél um kvöldið! Mótið var Íslandsmótið í kraftlyftingum, en ég var frekar lélegur og svo sem ekki við öðru að búast. Hins vegar hafði ég mikinn áhuga á að kanna mig og prófa nýja bekkpressuslopinn. En hann kom því miður ekki í tæka tíð. Ég reddaði mér enn og einu sinni með því að væla í félögunum. Hins vegar var mótið mjög vel heppnað og Akureyringum til sóma. Að sjálfsögðu verða alltaf einhver mistök á svona mótum t.d í dómgæslu, stangarvörslu osf, en þau eru oftast minni háttar. Sjálfur var ég m.a mjög heppinn að sleppa í gegnum bekkpressuna, en hafði í meitt mig í upphitun og fékk ekki að lækka byrjunarþyngdina. Svo var ég ragur í hnébeygjun að vanda, en setti í yfirfíling í deddi og bað um 280 kg á stöngina í síðustu lyftu, sem hefði þýtt að ég hefði unnið flokinn. En auðvitað var enginn innistæða fyrir því, en í gær trúði ég á kraftaverk. Það eru jú páskar. En ungu mennirnir eiga framtíðina. Ég tilheyri hins vegar eldra liðinu, en í mótinu voru nokkrar ónefndar gamlar kempur að leika sér eins og ég, en ungu mennirnir eru í þessu af lífi og sál. Sigfús Fossdal er núna orðinn bjartasta von Íslands í kraftlyftingum. Menn hafa spáð að hann verði næsti Íslendingur í 300 kg í bekkpressu. Hann tók alla stigabikara mótsins, en ég fékk líka einn flottann bikar fyrir þriðja sætið í mínum flokk. Það gengur bara betur næst!

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Nákvæmlega.. það gengur betur næst :-) Flott að fara í bjartsýniskast og telja sig eiga innistæðu, annars gerðist ekki neitt ef maður reyndi ekki við áskorunina. Og alltaf gott að sjá unga menn lyfta af andans móð ekki satt? Varðandi aldur þá hlýtur reynsla og gróin kunnátta að virka jákvætt, óháð aldri :-) A.

1:02 AM  

Post a Comment

<< Home