Friday, January 13, 2006

Starfslokasamning takk!

Ég vil að þeir DV ritstjórar fái þykkan starfslokasamning, því þeir fá sennilega enga vinnu á næstuni. En því er ekki að neita að það er sjónasviptir af þeim og ég studdi þetta blað og varði þangað til í síðustu viku. Verð því að lesa bresku slúðurblöðin eins og News of the world í staðin til að svala mínum vondu hvötum. Við bárum öll ábyrgð á þessu, en ekki bara Jónas og Mikael. Sagði ekki trésmiðurinn frá Nazareth að, "sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum". Ég las þetta blað alltaf í tætlur yfir einum kaffibolla á Súfistanum. Ég er því alveg sami hræsnarinn og hinir. Eigum við að segja sirka 100 milljónir á hvorn ritstjóra. Ég myndi frekar sætta mig við það, en Fl samninginn. Hann var hneyksli.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þetta voru persónur að velta sér upp úr mannlegri eymd og lifa á henni. Svoleiðis störf eiga ekki skilið umbun aukreitis við launasamning.

5:19 PM  

Post a Comment

<< Home