Wednesday, March 22, 2006

Veit ekki

Hún var reyndar "endurráðin" í starfið, en ég veit ekki alveg hvað gerðist og nenni í raun ekki að athuga það. En hitt veit ég að ég náði loks að tala við réttu aðilana hjá stéttarfélaginu og ekki skemmdi fyrir að eiga tengslanet inn í raðir stórfyrirtækisins. Ég held líka að ákveðnir aðilar hafi áttað sig á að Keisarinn var ekki í neinum fötum. Annars var ég orðinn alveg uppgefinn á þessu rugli öllu og ætla ekkert að fagna sérstaklega. Fór á létta æfingu í gær í Stevegym. Foringinn var ekki kominn heim, en hann varð heimsmeistari í fjölþraut öldunga núna um daginn. Hjörtur sagði að Steve hefði sagt að ég væri í mánaðar straffi frá stöðinni, en fyrir hvað vissi hann ekki. Ekki náðist í foringjann í síma til að bera undir hann "grínið", en að sjálfsögðu hlustaði ég ekki á ruglið í Hirtinum, enda ekki hægt að fylgja þessu eftir.

10 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þú ert kannski í straffi vegna vinskapar við Magister...??

12:56 PM  
Blogger Gunz said...

Mér skildist það væri eitthvað tengt því, en mig grunar að Steve hafi í einhverri ölvímu sagt að Masterinn væri í straffi. Ég er eiginlega búinn að hlægja mig máttlausan síðan í gær. Væri það ekki anzi langsótt að setja alla félaga Magisters í straff?

1:04 PM  
Anonymous Anonymous said...

Myndi halda að best væri að setja Hjörtinn í bann..
Annars eru vegir Foringjans jafn órannsakanlegir eins og þessa þarna uppi...
Kveðja!
Magister

3:15 PM  
Blogger Gunz said...

Ætla að ná í hann á morgun og kemst vonandi að því hvort heimsmeistaratitilinn hafi nokkuð stigið honum til höfuðs.

5:36 PM  
Blogger Gunz said...

Ég er víst kominn úr "straffinu" allavegana í bili.

11:05 AM  
Anonymous Anonymous said...

Það er ekkert grín að þekkja Magister.. en, sumir hafa úr háum söðli að detta svo að fallið getur verið hátt.. og vont.
Flott að Deng sé komin í heila höfn. Alltaf besta ð hafa hlutina á hreinu og geta mætt til vinnu með reist höfuð. Kv, rauðka.

10:37 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hjörturinn er eiginlega hægri hönd Steve, því miður

1:28 AM  
Anonymous Anonymous said...

Og sú hönd er hafin af sannri geðveiki frá guðunum...

8:22 AM  
Anonymous Anonymous said...

Voru guðirnir geggjaðir?

12:22 AM  
Anonymous Anonymous said...

Steve er bara fýlupúki ef hann bannar masterinn .....

4:39 PM  

Post a Comment

<< Home