Friday, October 22, 2004

Foringinn fyrirgefur Masternum

Steve hefur gert lýtið úr hneygslun sinna, vegna þess ég þurfti að yfirgefa æfinguna í flýti. Segir þó að ef ég ætli að verða sterkur verði ég að lyfta 1 reps lyftur. Hætta þessu pumpi, sem ekkert gefur. Það er að sögn foringjans, ástæðan fyrir að enginn Íslendingur hefur tekið 400 kg í réttstöðulyftu. Foringinn ætlar að reyna að hvetja Benna á mótinu og ef hann tekur 400 kg, verður hann kominn í flokk með goðsogninni KAZ. Bill Kazmaier er sá hrikalegasti sem ég hef hitt á ævinni. Spjallaði við goðið nokkur orð, þegar hann hélt fyrirlestur í World Class á ofanverðri síðustu öld. Hann gaf mér plakkat af sér og var hinn hressasti. Ég spjallaði líka við O.D.Wilson, en þeir voru saman með fyrirlesturinn. Gleymi þessu aldrei.
World Strongest Man finals:

0 Comments:

Post a Comment

<< Home