Monday, March 14, 2005

HERRAMAÐURINN ALLUR

Því miður tók ég þá leiðinlegu ákvörðun að farga mínum ástkæra HERRAMANNI, en ég var í raun á leið með hann á verkstæði í dag, til að halda honum gangfærum. Hann hafði ekkert komið nógu vel útúr þessum vetri og eftir nokkur samtöl við fagaðila ákvað ég með trega að fara með hann uppí HRINGRÁS, en hirða það heillegasta úr honum, sérstaklega felgurnar sem margir hafa haft augastað á. Þótt ég gerði ekki fræðilega úttekt á hvað það hefði kostað að setja HERRANNINN á götuna, var giskað á að þetta hlypi á hundruðum þúsunda, jafnvel hálfri milljón að gera hann vel upp. Ég trúi því nú reyndar ekki, en það sem háði mér með bílinn var aðstöðuleysi (bílskúr), kunnáttuleysi og jafnvel peningaleysi, sem þó var léttvægasti þátturinn. Ég er nefnilega orðinn svo séður í peningamálum. Ég var allveg tilbúinn að eyða 200.000 kr í Herramanninn.
BLESSUÐ SÉ MINNING HANS.


6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Votta þér samúð vegna Herramannsins. En í raun og veru sýndir þú honum óvirðingu með þessum endalokum-áttar þú þig á því? Meiri virðing fyrir svona Benz var að þú hefðir fært honum framhaldslíf með því að selja hann einhverjum sem ætlaði að gera eitthvað af viti með hann. Þú fékkst nú nokkur tilboð. ÞRJÓSKUHAUS. Kveðja Magister

4:20 PM  
Blogger Gunz said...

Fékk nokkur tilboð í bílinn (felgurnar) Hirti þær að sjálfsögðu. get selt þær á 15-20000 þús karl. En þetta var bíll með sál, en þeir sem buðu í hann vildu hann aðeins til niðurrifs og eingöngu útaf álfelgunum, en ég fékk þrjú tilboð í þær.
Herramaðurinn mun því lifa áfram á næsta Benz sem ég mun eignast!

8:58 AM  
Blogger Gunz said...

This comment has been removed by a blog administrator.

8:58 AM  
Blogger Gunz said...

This comment has been removed by a blog administrator.

8:59 AM  
Blogger Gunz said...

This comment has been removed by a blog administrator.

8:59 AM  
Anonymous Anonymous said...

chrome hearts outlet
a bathing ape
bape outlet
yeezy shoes
Travis Scott Jordan
supreme
goyard handbag
hermes outlet
goyard bag
adidas yeezy

5:24 AM  

Post a Comment

<< Home